Karrí: Er ekki raunverulegt krydd heldur kryddblanda, upprunnin frá Indlandi. Karrí inniheldur Turmerik sem gefur blöndunni gula litinn, auk þess cayenne pipar, svartan pipar, kóríander, kúmín (broddkúmen) og engifer. Karrí er misjafnlega sterk sem ræðst af hve mikill cayenne pipar er í blöndunni. Algengt er að nota hreina jógúrt með karríréttum til að milda þá. Mikil munur getur verið á hve sterkar karríblöndur eru eftir landsvæðum á Indlandi. Réttir frá Norður-Indlandi eru mun bragðsterkari en sunnar í landinu. Auk Indverska karrísins eru karríblöndur frá Tailandi vel þekktar á vesturlöndum. Að grunni eru sömu krydd í Tailenskum karríblöndum og þeim Indversku, en þar að auki eru ýmis krydd, því geta þau verið fjölbreitt að lit.