Fimmtudagur, 01. Október 2009 02:01
Elías
 |
Þeir sem hafa ferðast til Búlgaríu kannast við þetta frábæra salat, þar sem nær allir veitingastaðir hafa það á boðstólum. Gott með flestum mat.
|
Mánudagur, 22. Júní 2009 17:08
Elías
 |
Mjög frísklegt salat sem tekur skamma stund að útbúa. Á vel við grillað kjöt. Ekki skemmir hollustan fyrir. |
Þriðjudagur, 28. Apríl 2009 12:07
Elías
 |
Agúrku Raita er bæði notað sem sósa og meðlæti með grillréttum og karrýréttum. |
Laugardagur, 11. Apríl 2009 01:16
Elías
 |
Það tekur ekki langa stund að grilla þessa frábæru kartöflubáta. Kryddið getur hver valið eftir eigin smekk. Uppskriftin er áætluð fyrir fjóra. |
|
Þriðjudagur, 17. Mars 2009 06:05
Elías
 |
Þetta góða salat er þekkt víða um heim, hollt, gott og auðvelt. |
|
Miðvikudagur, 11. Mars 2009 17:57
Hjördís
 |
Ljúfeng og góð grænmetiskaka, tilvalin sem forréttur eða sjálfstæður réttur með brauði. Grænmeti er hægt að velja eftir því sem manni líkar best eða hvað er til í kælinum hverju sinni. Geymist vel í kæli.
|
Fimmtudagur, 26. Febrúar 2009 02:47
Elías
 |
Steikt grænmeti er bæði hollt og gott. Þessi réttur er fljótlegur og auðveldur þó innihaldslýsingin virki nokkuð löng. Svo þekkja allir samnefnda kvikmynd. |
Fimmtudagur, 29. Janúar 2009 04:27
Elías
|
Avacado eða Lárperumauk. Alltaf skal nota vel þroskaðan ávöxt (gefur örlítið eftir sé þrýst á hann.) Fitan úr avacado er holl. Ekkert kólesteról er í ávextinum. Aðferð Flysjið tómata og hreinsið kjarna frá. Skerið avókadó langsum í tvennt og fjarlægið steininn, takið aldinkjötið úr með skeið. Grænmeti saxað fín. tLauk, tómötum, chilliepipar, papriku og kóríander blandað saman í matvinnsluvél. Bætið avacadóinu saman við tómatahræruna, einnig salti, pipar og sítrónusafa og að síðustu olíunni, hrærið vel. Gott er að Geymist vel í kæli.
|
|
Innihald 1/2 stk. Laukur 4 stk Tómatar 1 stk. Ferskur grænn chillepipar 1/2 stk. Paprika græn 1 msk. Kóríander 2 stk. Avókadó 2 tsk. Sítrónusafi 1 msk. Ólífuolía Salt og pipar |
Miðvikudagur, 28. Janúar 2009 23:50
Elías
 Glæsilegur og hollur smáréttur eða forréttur.
Aðferð Furuhnetur ristaðar á þurri pönnu uns þær taka smá lit. Sjóðið kartöflur og saxið basillaufin. Stífþeytið í sitthvoru lagi rjóma og eggjahvítu. Stappið heitar afhýddar kartöflurnar ásamt rjómaosti, basil og furuhnetum. Kryddið með salti og pipar, kælið. Stífþeyttum rjóma og eggjahvítu blandað varlega saman við. Látið standa minnst klukkustund. Tómatar sneiddir og raðað á fallegt fat, kryddið með salti og pipar. Raðið nokkrum basilblöðum yfir tómatana, dreypið olíu og ediki yfir. Mótið littlar bollur úr kartöflustöppunni og raðið á tómatana. Ristað skorpulaust brauð gott með. |
|
Innihald 300 gr. Kartöflur 2 msk. Furuhnetur 150 gr. Rjómaostur ½ kg. Tómatar 1 stk. Eggjahvíta ¼ ltr. Rjómi 2 msk. Balsamedik 1 ½ msk. Ólífuolía Salt og pipar |
Þriðjudagur, 27. Janúar 2009 11:02
Elías
Mauk úr kjúklingabaunum, hollt og gott með brauði, kexi sem fylling í kebab, einnig með salati, kjöti og fl.
Aðferð Baunirnar skolaðar vel og settar í bleyti í u.þ.b. 12 klst. eða yfir nótt. Soðnar við vægan hita í 1½ - 2 klst. allt sett í matvinnsluvél og maukað. Bætið við soði af baununum eftir þörfum til að fá æskilega þykkt. |
|
Innihald 250 gr. Kjúklingabaunir ½ krukka Tahini 4 msk.Olía 2 stk. Hvítlauksrif 1 msk. Sítrónusafi Smávegis Baunasoð. |

|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |