Glæsilegur og hollur smáréttur eða forréttur.
| Aðferð Furuhnetur ristaðar á þurri pönnu uns þær taka smá lit. Sjóðið kartöflur og saxið basillaufin. Stífþeytið í sitthvoru lagi rjóma og eggjahvítu. Stappið heitar afhýddar kartöflurnar ásamt rjómaosti, basil og furuhnetum. Kryddið með salti og pipar, kælið. Stífþeyttum rjóma og eggjahvítu blandað varlega saman við. Látið standa minnst klukkustund. Tómatar sneiddir og raðað á fallegt fat, kryddið með salti og pipar. Raðið nokkrum basilblöðum yfir tómatana, dreypið olíu og ediki yfir. Mótið littlar bollur úr kartöflustöppunni og raðið á tómatana. Ristað skorpulaust brauð gott með. |
Innihald 300 gr. Kartöflur 2 msk. Furuhnetur 150 gr. Rjómaostur ½ kg. Tómatar 1 stk. Eggjahvíta ¼ ltr. Rjómi 2 msk. Balsamedik 1 ½ msk. Ólífuolía Salt og pipar |
Lesa meira...





