Föstudagur, 15. Maí 2009 14:56
Elías
 |
Hún er ljúfeng og vinsæl þessi humarsúpa, ekki verra að matreiðslan er auðveld
|
|
Fimmtudagur, 19. Febrúar 2009 00:13
Elías
 Það er hægt að elda baunasúpu þó ekkert sé saltkjötið .
Aðferð Baunir lagðar í bleyti í minnst 12 klst. látið síðan renna af baununum og skolið, setjið þær í pott ásamt kjötsoðinu. Sjóðið í 1-1½ klst. og fleytið froðu ofan af soðinu. Afhýðið grænmetið og skerið í hæfilega bita ásamt beikoni og setjið í pottinn síðustu 20-30 mín. Bragðbætið með súputeningum og saltið ef þarf. |
|
Innihald 200 gr. Gular hálfbaunir 1½ ltr. Kjötsoð 100 gr. Beikon 200 gr. Gulrætur 200 gr. Rófur 1 stk. Lauk ½ stk. Blaðlaukur 1 stk. Sellerístöngull 2-3 stk. Súputeningar Salt |
Sjá saltkjöt og baunir:
Þriðjudagur, 27. Janúar 2009 10:43
Elías
Allir þekkja þessa heimsfrægu súpu. Svo matarmikil að hún hentar vel sem máltíð með góðu brauði Aðferð Saxið grænmetið nokkuð smátt. Hitið olíu í potti, laukur og hvítlaukur mýktur í henni síðan er öllu grænmeti nema blómkáli og spergilkáli, bætt út í og látið malla í nokkrar mínútur. Vatni og grænmetiskrafti bætt saman við, sjóðið í ca. 20 mín. Blómkáli, spergil og pastaslaufum bætt í pottinn, sjóðið áfram í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til pastað er soðið. Kryddið að smekk með salti og pipar. Gott að rífa Parmaost yfir súpuna. |
|
Innihald  2 msk. Olía 1 stk. Lauk 2 stk. Hvítlauksgeirar 3 stk. Gulrætur 3 stk. Sellerístönglar 2 stk. Paprikur 500 gr. Tómatar 1 msk. Ferskt timjan, 250 gr. Blómkál 250 gr. Spergilkál 100 gr. Pastaslaufur 1 – 2 msk. Grænmetiskraftur Pipar og salt 1 ltr. Vatn |
Föstudagur, 16. Janúar 2009 00:48
Elías
 Fljótleg og góð súpa, eins einföld og hægt er að hafa hana.
Aðferð Grænmetið skorið í strimla og steikt aðeins í olíu í potti, soðinu eða vatni hellt yfir og gænmetið soðið mjúkt. Bragðbætt með kjötkrafti og þykkt með maizena, rjóma bætt í að síðustu. Súpan borin fram vel heit með góðu brauði. |
|
Innihald Sveppir Blaðlaukur Blómkál Gulrætur 1 ½ ltr. Soð (vatn) Maizenamjöl Kjötkraftur 1 dl rjómi |
Laugardagur, 27. Desember 2008 07:46
Elías
Þessi kakósúpa er fljótleg og einföld en mjög bragðgóð.
|
|
|
|
|
|
|