Tertur

Tögguterta

Senda til vinar Prenta út
( 4 - atkvæði )
Nóa töggur
Fljótleg og auðveld terta með Rice Krispiesbotni, rjóma og góðu karamellukremi. Tilvalin fyrir afmælisveislurnar.

 

Rice Krispies Kransakaka

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
Þessi Rice Krispies kransakaka hefur slegið í gegn í öllum veislum þar sem börn eru meðal gesta, fullorðna fólkið kann einnig að meta bút og bút.
Aðferð
Setjið saman í pott smjör, síróp og súkkulaði og hitið þar til súkkulaðið er vel bráðið, hrærið stöðugt í á meðan. Bætið Rice Krispies saman við og hrærið vel í svo allt blandist vel. Setjið í vel smurð kransakökuform og látið kólna.Hringirnir settir saman með bráðnu súkkulaði og skreyttir að vild.
Innihald
500 gr. Nóa Síríus súkkulaði
1 ds. Síróp (grænu dósirnar).
150 gr. Smjör
280 gr. Rice Krispies
 

Sacher terta

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
Sacherterta Þessi fræga terta er oft nefnd drottningin á meðal súkkulaði unnenda og það verðskuldar hún vissulega. Ekki sakar að hún er frekar auðveld í vinnslu. 

 

Kókósbolluterta

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Aðferð
Þeytið saman egg og sykur. Hveiti og lyftiduft sett útí og síðan brytjað súkkulaði. Bakið í tveimur vel smurðum formum við 200° C í 20 mín. Látið kólna áður en tekið er úr formunum. Skerið hverja kókosbollu í tvennt. Þeytið rjómann og setjið ásamt kókosbollunum á milli botnanna. Tertan þolir vel að vera fryst.
Botninn - Innihald
4 stk. Egg
125 gr. Strásykur
100 gr. Suðusúkkulaði
1 tsk. Lyftiduft
2 msk. Hveiti
Fylling - Innihald
1 peli Rjómi
4 stk. Kókosbollur
 

Sjöunda viðundrið

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
sjuenda-undur Þessa gómsætu tertu er best að útbúa með dags fyrirvara svo botnarnir nái að verða mjúkir af rjómanum.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Fróðleikur

Lárpera

article thumbnail

Lárpera:  Avókadó, Avocado ( Persea americana ) er ávöxtur sem er mikið notaður se [ ... ]


Sellerírót

article thumbnail

Sellerírót,  einnig nefnd Seljurót en á ensku nefnist hún Celery root. Auðug af C v [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Majoran : Oft nefnd marjoram eða kryddmæra . Majoran hefur verið þekkt í aldir og notkun fer einungis eftir smekk því möguleikarnir eru endalausir. Jurtin missir mikið bragð við þurrkun og þolir illa langa eldun, því er betra ef hún er sett í réttina í lok eldunar. 

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook