| Ef þið hafið prófað uppskriftina af Sörum þá er þetta uppskriftin sem þið leitið eftir! Sama uppskrift, meira magn :-) dásamlegt. |
| Aðferð Möndlurnar malaðar, ekki í duft. Flórsykur sigtaður og bætt í. Eggjahvítur stífþeyttar og blandað varlega saman við. Sett með teskeið á bökunarplötu klædda smjörpappír og bakað við 180°C í u.þ.b. 10 mín. Ef notaður er blástursofn hafið þá hitann 160°C. U.þ.b. 200 stk. |
Innihald 600 gr. Möndlur 500 gr. Flórsykur 11 – 12 stk. Eggjahvítur |
| Kremið - Aðferð Sjóðið vatn og sykur í einskonar síróp. Eggjarauður þeyttar og sírópinu hellt í mjórri bunu út í. Þeytið vel á meðan blandan kólnar, uns hún er létt og ljós. Sigtig kakó og kaffiduftið og hrærið saman við mjúkt smjörið svo verði kekkjalaust og bættið því saman við eggjablönduna. Smyrjið kreminu á botnana á kökunum og frystið. Þegar kökurnar eru orðnar vel stýfar er kremhlutanum dýft í súkkulaðihjúp sem er gerður úr góðu hjúpsúkkulaði sem er brætt yfir vatnsbaði og haft rétt volgt svo hjúpurinn verði ekki of þunnur. Geymast vel í frysti. |
Kremið - Innihald 11 – 12 stk. Eggjarauður 2 ¼ dl. Strásykur 2 ¼ dl. Vatn 500 gr. Smjör 3 msk. Kakóduft 1 msk. Neskaffi. |



