![]() |
Grillaðir tómatar eru góðir sem meðlæti með mat, fljótlegra og auðveldara getur meðlætið ekki orðið. Hér eru tómatarnir fylltir með ljúfengum ostum. |
| Aðferð Látið osta standa við stofuhita til að mýkjast. Skolið tómatana og skerið sneið ofan af toppnum. Fjarlægið u.þ.b. helming af tómatkjötinu. Skeri frá hvítu húðina af Camenbertostinum, því sem eftir stendur er stappað eða hrært saman við rjómaostinn með gaffli og fyllið í tómatana, u.þ.b. sléttfulla. Penslið tómatana með ólífuolíu og setjið á vel heitt grillið, gjarnan á álbakka, í 8-12 mín. eða þar til osturinn er vel bráðinn.
|
Innihald 4 stk. Tómatar 1/3 stk. Camenbert ostur 3 msk. Rjómaostur 2 msk. Ólífuolía |





