Grillaður Silungur

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
regnbogasilungur Þetta er mjög einföld og auðveld uppskrift að grilluðum silungi. Sömu aðferð er einnig gott að nota við fleiri fisktegundir eins og ýsu og smáþorsk.
Aðferð
Hreinsið fiskinn, pennslið hann með ólífuolíu, innan sem utan og nuddið með salti og sítrónupipar. Saxið sítrónuna frekar gróft ásamt púrrulauk, steinselju og spínati og setjið inn í fiskinn. Vefjið fiskinn í álpappír, lokið vel. Gott að láta standa í 15-20 mín. Grillið við meðalhita í u.þ.b. 10 mínútur, snúið af og til. Berið fram með soðinu af fiskinum, kartöflum og fersku grænmeti.
Innihald
2 pund Bleikja
1 stk. Sítróna
1 stk. Púrra
1 búnt Steinselja
1 lúka Spínat
Sítrónupipar
Maldon Salt
Ólífuolía

 

 

 

 

 

 

Fróðleikur

Að skera ost

article thumbnail

Oft er betra að skera ost ef ostaskerinn er geymdur í kæli með ostinum, þá er sama hitas [ ... ]


Ferskar kryddjurtir

article thumbnail

Afgangar af kryddjurtum. Ferskar kryddjurtir vilja skemmast fljótt því er gott að fryst [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Súkkíni: Einnig nefndur kúrbítur, dvergbítur, zucchini, courgette. Ættingi graskersins. Bestur ef hann er ekki stærri en 12-15 cm. Bragðmildur en verður að mauki sé hann eldaður of mikið. Möguleikar í matreiðslu ótæmandi. Engin fita, ekkert kólesteról.
                                        Lesa meira.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook