Jarðarberja Mojito

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
Jarðarberja  Mojito Einföld uppskrift að þessum eðal kokkteili. Með þessari útfærslu hafa vinsældirnar aukist á ný. Hér eru það fersk jarðarber auk myntulaufa sem gefa drykknum þetta sérstaka bragð og útlit.

Aðferð
Myljið saman 1 og ½ jarðarber, hrásykur og 4 myntublöð auk safa úr 1/2 limeávexti. Setjið í glas, hrærið. Bætið Bacardi út í, fyllið glasið upp með sódavatni ásamt muldum ísnum. Ekki hræra í glasinu eftir að vínið er komið út í, drykkurinn getur orðið gruggugur og ólystugri. Berið fram skreytt með 3 jarðarberjahelmingum,  myntulaufum og skerið aðeins upp í fjórða jarðarberið og festið á glasbrúnina.
Innihald
50 ml. Bacardi Rom
4 stk. Jarðarber fersk
6 stk. Myntublöð fersk
3 msk. Hrásykur
1/2 stk. Lime ávöxtur
25 ml. Sódavatn
Mulinn ís
 

Fróðleikur

Risotto

article thumbnail

Risotto: Ein algengasta aðferðin á Ítalíu við eldun á hrísgrjónum. Oftast notuð se [ ... ]


Kúrbítur

article thumbnail

  Kúrbítur:   Einnig nefndur dvergbítur, súkkíni, zucchini, courgette, squash. Æ [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Malla:   Matvælum haldið við suðumark, svo rétt sjáist á yfirborði að rétturinn sjóði. Oft notað við lengri eldun t.d. á pottréttum og súpum, hráefni mýkjast við lengri suðu.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook