Fersk hvítlaukssósa.

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
Hvitlaukssosa Einstaklega fersk og góð hvítlaukssósa. Í stað mayonnaise er notaður sýrður rjómi og ólívuolía, því er sósan í hollari kantinum. Hentar einkar vel með grillmat og skelfiski.
Aðferð
Hellið ólífuolíu í mjórri bunu saman við sýrðan rjóma, hrærið vel saman ásamt hunanginu. Pressið hvítlauksgeirana, saxið fínt og bætið út í rjómann. Rífið græna lagið af hýði hálfrar Límónu fínt og setjið saman við ásamt fínt saxaðri steinselju. Kryddið með salti og pipar. Best ef sósan fær að standa í kæli um stund. Magn áætlað fyrir 4.
Innihald
200 gr. Sýrður rjómi
1/2 dl. Jómfrúar ólífuolía
2 stk. Hvítlauksgeirar
1/2 stk. Lime
2-3 msk.Steinselja
2 tsk. Hunang
Salt og pipar
 

Fróðleikur

Vanilla

article thumbnail

  Vanilla: Fræbelgur af brönugrastegund sem hefur fengið ákveðna meðhöndlun til að [ ... ]


Ferskar kryddjurtir

article thumbnail

Afgangar af kryddjurtum. Ferskar kryddjurtir vilja skemmast fljótt því er gott að fryst [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Malla:   Matvælum haldið við suðumark, svo rétt sjáist á yfirborði að rétturinn sjóði. Oft notað við lengri eldun t.d. á pottréttum og súpum, hráefni mýkjast við lengri suðu.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook