|
Það hefur lengi tíðkast að bera soðkökur með saltkjöti og baunum. |
| Aðferð Rúgmjöl sett í skál, sjóðandi vatni hellt yfir og hrært vel saman, hnoðið heilhveiti saman við deigið. Þegar deigið er hæfilega þykkt og meðfærilegt, útbúið 6 - 8 bollur sem eru flattar út í ca. 1 sm. þykkar kökur. Best ef þær standa góða stund. Setjið eina í senn (þær vilja límast saman) í baunapottinn síðustu 20 - 30 mín. berið fram rjúkandi heitar með kjötinu og súpunni. |
Innihald 4 dl. Rúgmjöl 1 dl. Heilhveiti 2 dl. Sjóðandi vatn |
|
|
|



